Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 20. gr. laga nr. 35/2004 — Lög um rannsókn flugslysa

Hæstiréttur birt 16. mars 2015

176/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn X (Sigurður G. Guðjónsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Á á hendur X var vísað frá dómi. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að í kæru Á segði það eitt um ástæður, sem kæran væri reist á, að vísað væri til sjónarmiða Á sem reifuð væru í hinum kærða úrskurði. Taldi dómurinn, með vísan til 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ófullnægjandi væri að láta við það sitja að vísa til þess sem fram hefði komið við meðferð málsins í héraði fyrir uppkvaðningu úrskurðarins. Þá var ekki talið að hægt væri að bæta úr þeim annmarka á kærunni með því að skila greinargerð til Hæstaréttar sem hefði að geyma röksemdir Á fyrir kröfu hans. Samkvæmt þessu var málinu vísað frá Hæstarétti.