Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 46. gr. laga nr. 32/2005 — Lög um miðlun vátrygginga

Landsréttur birt 3. apríl 2020

101/2020

Premium ehf (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) gegn Hagsmunum LTR ehf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu H ehf. um að P ehf. yrði gert að veita dómkvöddum matsmanni aðgang að nánar tilgreindum gögnum. Staðfest var niðurstaða hins kærða úrskurðar um aðild P ehf. og að uppfyllt væru efnisskilyrði 3. mgr. 67. gr. sbr. 2. mgr. 68. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í úrskurði Landsréttar kom fram að við mat á því hvort ákvæði b-liðar 2. mgr. 53. gr. laga nr. 91/1991 tæki til þeirra upplýsinga sem krafa H ehf. laut að var litið til þess að krafan var ekki um aðgang að nánar tilteknum upplýsingum á persónugreinanlegu formi. Var því ekki fallist á þá málsástæðu P ehf. að honum væri ekki heimilt að veita aðgang að upplýsingunum á þeim grundvelli. Var með sömu rökum ekki fallist á að um óheimila vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga væri að ræða.

Landsréttur birt 18. september 2019

572/2019

Sparnaður ehf og Premium ehf (Einar Páll Tamimi lögmaður) gegn Hagsmunum LTR ehf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu varnaraðila um að sóknaraðila P ehf. yrði gert að veita dómkvöddum matsmanni aðgang að nánar tilgreindum gögnum. Matsmaðurinn var dómkvaddur undir rekstri málsins í héraði til að meta nánar tiltekin atriði í tengslum við útreikning og uppgjör á samningi aðila. Í úrskurði Landsréttar kom fram að matsgerð sú sem ágreiningur aðila væri sprottinn af lyti samkvæmt efni sínu ekki að þeim gögnum í vörslu sóknaraðila P ehf. sem kröfur varnaraðila tækju til. Þegar af þeirri ástæðu yrði skylda sóknaraðila P ehf. til að veita matsmanni aðgang að þeim ekki reist á ákvæðum 3. mgr. 62. gr. laga nr. 91/1991. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.