Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 30. gr. laga nr. 32/2005 — Lög um miðlun vátrygginga
A varð óvinnufær og krafðist bóta úr starfstryggingu sem hann hafði keypt hjá ensku tryggingafélagi fyrir milligöngu Á ehf. og Á. A var tilkynnt að ekki væri grundvöllur fyrir því að krefjast bóta úr tryggingunni þar sem hún hefði ekki verið endurnýjuð. A höfðaði mál og krafðist bóta þar sem hann taldi að Á ehf. og Á hefðu með saknæmum og ólögmætum hætti vanrækt að endurnýja trygginguna. Í dómi Landsréttar kom fram að fyrir lægi að A hefði náð samkomulagi um fullnaðaruppgjör bóta við það vátryggingafélag sem yfirtók skyldur upphaflegs vátryggjanda gagnvart honum. Líta yrði svo á að með yfirlýsingu A, sem lá fyrir í málinu, og uppgjöri bóta í samræmi við hana hefði hann fallið frá frekari kröfum á hendur vátryggingafélaginu vegna vátryggingarinnar. Voru Á ehf. og Á því sýknaðir af kröfum A. Í ljósi þess að A lagði ekki fram skjal um uppgjörið fyrr en við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti, eftir að vitni sem gaf þar skýrslu upplýsti um tilvist þess, var talið að áfrýjun málsins og rekstur fyrir Landsrétti hefði verið að þarflausu. A var því gert að greiða Á ehf. og Á málskostnað á grundvelli 1. mgr. 130. gr. og a-liðar 1. mgr. 131. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.