Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um kirkju- og manntalsbækur (sálnaregistur) nr. 3/1945

Hæstiréttur birt 8. nóvember 2010

262/2010

A og B (Steinn S. Finnbogason hdl) gegn íslensku þjóðkirkjunni og C (Gestur Jónsson hrl)
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A og B gegn Í og C var vísað frá dómi. Voru A og B hvorki talin hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 9/1991 um meðferð einkamála, né yrðu dómstólar krafðir álits um lögfræðileg efni, sbr. 1. mgr. 25 gr. laganna. Þá var ekki talið að kröfur A og B væru í samræmi við e. og f. lið 1. mgr. 80. gr. sömu laga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2010

E-11725/2009

A og B (Steinn Finnbogason hdl) gegn íslensku þjóðkirkjunni og C (Hilmar Gunnarsson hdl)
Málaflokkur: Barnaréttur

Stefnendur kröfðust þess að viðurkennt yrði að skírnarsáttmáli hefði ekki tekið gildi en til vara að hann yrði felldur úr gildi með dómi. Krafist var að færsla í kirkjubók um skírnina yrði felld úr gildi en til vara að dómsorð yrði birt við færsluna. Þá var krafist viðurkenningar á bótaskyldu vegna skírnarinnar en til vara að viðurkennt yrði að réttur samkvæmt 4. mgr. 18. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi hefði ekki verið virtur. Til þrautavara var krafist að viðurkennt yrði að óheimilt hafi verið að skíra B. Með úrskurði dómsins var málinu vísað frá dómi þar sem kröfur stefnenda uppfylltu ekki réttarfarsskilyrði samkvæmt lögum um meðferð einkamála.