Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. gr. laga nr. 24/2005 — Lög um rannsóknarnefnd umferðarslysa

Hæstiréttur birt 20. október 2011

706/2010

A (Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

A höfðaði mál gegn Í og krafðist miskabóta vegna birtingar á skýrslu R, en þar var fjallað um rannsókn á umferðarslysi þar sem maki A lést. Byggði A á því að birting á tilteknum upplýsingum í skýrslunni hafi falið í sér ólögmæta meingerð gegn friði hans, frelsi, æru eða persónu sbr. b. lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og R þannig brotið gegn friðhelgi einkalífs hans samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar. Í Hæstarétti var ekki fallist á að nefndarmönnum í R hafi mátt vera ljóst að efni skýrslunnar gæti falið í sér upplýsingar, sem leiddu til þess að A hefði svo sérlega ríkra hagsmuna að gæta, eins og áskilið væri í 4. mgr. 12. gr. laga nr. 24/2005 um nefndina, að henni hefði borið að gefa honum kost á að tjá sig um efni skýrslunnar áður en hún var birt opinberlega. Þá yrði í ljósi þeirrar auknu saknæmiskröfu sem gera yrði þegar dæma ætti miskabætur samkvæmt b. lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga ekki talið að það bakaði Í skyldu til greiðslu miskabóta þótt nefndin hefði ekki orðið við beiðni hans um að taka út eða breyta tilteknum upplýsingum. Þá yrði ekki heldur á það fallist að í því fælist saknæm háttsemi af hálfu nefndarinnar að tilgreina í skýrslunni upplýsingar um að áfengis- og lyfjarannsóknir ökumanns hefðu verið neikvæðar og synja fyrir að fjarlægja þær upplýsingar. Með þessum athugasemdum staðfesti Hæstiréttur hinn áfrýjaða dóm um sýknu Í með vísan til forsendna hans.