Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 116. gr. laga nr. 24/2000 — Lög um kosningar til Alþingis
Stefnandi er stjórnmálasamtök sem bauð fram til kosninga til Alþingis 2013. Stefnandi hlaut alls 4.659 atkvæði af 189.023 greiddum og gildum atkvæðum en hlaut ekki nógu mikið fylgi til þess að ná manni á þing. Nákvæmlega reiknað með níu aukastöfum hlaut stefnandi því 2,464615466% gildra atkvæða. Ágreiningurinn varðaði það hvort stefnandi hefði hlotið 2,5% atkvæða sem er sá fjöldi atkvæða sem þarf að ná til þess að eiga rétt á framlagi til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 162/2006. Talið var að við túlkun á 1. mgr. 3. gr. laga nr. 162/2006 væri ekki hægt að beita námundun heldur yrði að túlka ákvæðið þannig að þau stjórnmálasamtök sem hafi ekki náð manni á þing verði að hafa fengið greidd svo mörg gild atkvæði að verði fyllilega jafnað til 2,5% af greiddum og gildum atkvæðum.