Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 30. gr. laga nr. 20/1992 — Barnalög
M og K deildu um forsjá dóttur sinnar. Tekið var fram að þegar barnið fæddist hafi foreldrarnir hvorki verið gift né í sambúð og hafi K því farið ein með lögbundna forsjá stúlkunnar, sbr. 2. mgr. 30. gr. barnalaga nr. 20/1992, en ákvörðun um hvort breyta skuli forsjá sem reist sé á því lagaákvæði ráðist að nokkru leyti af öðrum atriðum en þegar forsjáin eigi sér aðra stoð. Var talið að þótt M hafi að áliti dómkvaddra matsmanna verið betur fær en K til að fara með forsjá barnsins og að hann hafi búið við meiri stöðugleika en K, meðal annars varðandi atvinnu og búsetu, nægi það ekki samkvæmt 3. mgr. 35. gr. laga nr. 20/1992 til að knýja fram breytingu á forsjánni, enda gáfu gögn málsins, þ.m.t. niðurstaða dómkvaddra matsmanna, ekki annað til kynna en að K hafi séð vel um barnið og væri hæf til að búa því nauðsynlegt öryggi.
Björn Baldursson fyrir hönd Aðalsteins Bjarna Björnssonar gegn
íslenska ríkinu og Rut Skúladóttur
B höfðaði mál gegn R og íslenska ríkinu til ógildingar á samkomulagi um skaðabótagreiðslur íslenska ríkisins til sonar hans A. Var málinu vísað frá héraðsdómi á grundvelli þess að B væri ekki forsjáraðili A og því brysti hann heimild til að reka málið. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest með vísan til forsendna.