Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 92. gr. laga nr. 20/1954 — Lög um vátryggingarsamninga
A lenti í umferðarslysi í mars 1995 og varð fyrir varanlegu líkamstjóni. Óumdeilt var tryggingafélagið S hf. bæri að bæta honum tjónið úr slysatryggingu ökumanns en aðilar höfðu deilt um fjárhæð bótanna. S hf. greiddi inn á kröfuna og gerði síðan upp við A 14. febrúar 2002 samkvæmt yfirmatsgerð sem þá lá fyrir. A höfðaði mál 14. mars 2005 og krafðist hærri bóta. Héraðsdómur féllst á það og dæmdi S hf. til að greiða A eftirstöðvar bótanna með vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga frá 24. apríl 1997 til 24. maí 2001 og dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. S hf. greiddi A fjárhæðina ásamt vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga frá 14. mars 2001 til 14. mars 2005 en áfrýjaði svo málinu. Taldi félagið að vextir fyrir þann tíma væru fyrndir og að miða ætti upphafstíma dráttarvaxta við annað tímamark en samkvæmt héraðsdómi. Talið var að A hefði við uppgjörið 14. febrúar 2002 þurft að gera fyrirvara ef hann vildi viðhalda rétti til að ráðstafa eldri innborgunum inna á elstu áfallna vexti af þeim hluta kröfunnar sem hann þá taldi ógreiddan. Vextir sem fallið höfðu á kröfuna fyrir 14. mars 2001 voru taldir fyrndir samkvæmt 2. tl. 3. gr., sbr. 11. gr. laga nr. 14/1905. Í ljósi þess að meira en þrjú ár liðu frá uppgjörinu 14. febrúar 2002 og þar til málið var höfðað þótti rétt að beita heimild í niðurlagi 9. gr. laga nr. 38/2001 og hafna kröfu A um dráttarvexti fyrir þetta tímabil. Hins vegar var ekki fallist á að tafir á meðferð málsins í héraði vegna álitsumleitunar til læknaráðs ættu að hafa áhrif á upphafstíma dráttarvaxtakröfunnar. Samkvæmt þessu var S hf. var gert að greiða A dráttarvexti af þegar greiddum eftirstöðvum bótanna frá því að málið var höfðað og til greiðsludags.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur var Sögn ehf. dæmt til að greiða stefnanda, Síldarvinnslunni hf., skaðabætur. Sögn ehf. hafði frjálsa ábyrgaðrtryggingu hjá stefnda sem er tryggingarfélag. Stefnandi höfðaði mál á grundvelli 95. gr. laga nr. 20/1954 og krafðist greiðslu samkvæmt vátryggingarsamningi stefnda og Sagnar ehf. en hann taldi tjón sitt falla undir trygginguna. Ekki var á það fallist og var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda. Málskostnaður var felldur niður.