Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 7. gr. laga nr. 19/2002 — Lög um póstþjónustu
Í málinu krafðist P skaðabóta úr hendi Í vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna ólögmætra og saknæmra aðgerða Í sem hefðu komið í veg fyrir starfsemi P á markaði fyrir söfnun og miðlun bréfapósts frá hausti 2008 til mars 2010. Með vísan til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda var krafa P talin fyrnd þegar málið var höfðað 10. apríl 2014, en líta yrði svo á að P hefði haft vitneskju um hið ætlaða tjón og þann sem bar ábyrgð á því í síðasta lagi þegar hann hefði hafið reksturinn. Var Í því sýknaður af kröfum P.
Ógildingarmál.