Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 13. gr. laga nr. 19/2002 — Lög um póstþjónustu

Landsréttur birt 23. nóvember 2018

276/2018

Póstmarkaðurinn ehf (Hörður Felix Harðarson lögmaður) gegn Íslandspósti ohf (Andri Árnason lögmaður)

Í málinu krafðist P skaðabóta úr hendi Í vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna ólögmætra og saknæmra aðgerða Í sem hefðu komið í veg fyrir starfsemi P á markaði fyrir söfnun og miðlun bréfapósts frá hausti 2008 til mars 2010. Með vísan til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda var krafa P talin fyrnd þegar málið var höfðað 10. apríl 2014, en líta yrði svo á að P hefði haft vitneskju um hið ætlaða tjón og þann sem bar ábyrgð á því í síðasta lagi þegar hann hefði hafið reksturinn. Var Í því sýknaður af kröfum P.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2018

E-2431/2014

Póstmarkaðurinn ehf (Hörður Felix Harðarson lögmaður) gegn Íslandspósti ohf (Andri Árnason lögmaður)

Stefnandi krafðist skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi stefnda hafa valdið sér með meintri ólögmætri sölusynjun í skilningi samkeppnislaga á tímabilinu frá október 2008 til mars 2010. Ágreiningur var m.a. um upphaf fjögurra ára fyrningarfrests kröfunnar og taldi dómurinn upphaf hans vera í mars 2010. Stefndi var því sýknaður þegar af þeirri ástæðu að krafan var fyrnd þegar málið var höfðað í apríl 2014.