Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 96. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (
Óli Ingi Ólason saksóknari)
gegn
Reyni Strandberg Arnarsyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
R var sakfelldur fyrir hylmingu og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk annarra umferðarlagabrota. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot R eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Refsing R var ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða sekt í ríkissjóð auk þess sem hann var sviptur ökurétti.
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að ákæruvaldinu yrði gert óheimilt að leggja fram í málinu niðurstöður rannsókna á þvag- og blóðsýnum, sem tekin voru við rannsókn málsins.
Stefnandi höfðaði málið á hendur þremur aðilum vegna skuldar á tékkareikningi. Einn stefndi var dæmdur til að greiða skuldina, en stefnandi féll frá kröfum á hendur tveimur stefndu þar sem lögreglurannsókn leiddi í ljós að undirskrift þeirra á sjálfskuldarábyrgð hafi verið fölsuð.