Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 95. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 25. febrúar 2016

147/2016

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Arnar Ingi Ingvarsson hdl)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Gæsluvarðhaldskröfu hafnað. Hafnað var kröfu ákæruvaldsins um að X yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Hæstiréttur birt 4. febrúar 2014

71/2014

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl)

X var ákærður fyrir lyfjalagabrot með því að hafa átt 462 stykki af Ritalin Uno, 115 stykki af Ritaline og 105 stykki af Mogadon að hluta til í sölu- og dreifingarskyni, án þess að hafa markaðsleyfi og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar. Einnig að hafa selt og afhent ótilgreindum fjölda einstaklingum sömu lyf án þess að hafa slík leyfi. Þá var X ákærður fyrir vopnlagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum sverð, hljóðdeyfa og riffil. Loks var X ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa aflað sér ávinnings með sölu og dreifingu ótiltekins magns af lyfseðilsskyldum lyfjum. Brot J voru talin sönnuð en þó var lagt til grundvallar að ávinningur hans af sölu og dreifingu lyfseðilsskyldra lyfja hefði aðeins verið hluti af því sem honum var gefið að sök í ákæru. Þá varðaði það J ekki refsingu samkvæmt þeim refsiákvæðum sem vísað var til í ákæru að afla sér hljóðdeyfa án leyfis lögreglu. Var X gert að sæta fangelsi í sex mánuði en refsingin var skilorðsbundin til fimm ára.