Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 76. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Landsréttur birt 19. maí 2023

581/2022

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í október 2015 veist með ofbeldi að þáverandi sambýliskonu sinni, A, hrint henni, slegið hana í andlit og ítrekað með beltissylgju og sparkað undan henni fótunum svo hún féll á hægri öxl og hlaut af áverka sem tilgreindir voru í ákæru. Landsréttur taldi sannað með trúverðugum framburði A, sem fékk stoð í gögnum málsins, að X hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Ekki var fallist á það með X að sök hans hefði verið fyrnd þegar ákæra í málinu var birt honum í mars 2022. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X veittist ítrekað að A umrætt sinn og beitti belti við atlöguna og að A hefði hlotið talsverða áverka af atlögunni, meðal annars beinbrot, sbr. 1., 2. og 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá horfðu tengsl X og A til refsiþyngingar, sbr. 3. mgr. 70. gr. sömu laga. Var refsing X ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.