Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 5. mgr. 27. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
X kærði úrskurð héraðsdóms um að hann skyldi sæta farbanni samkvæmt 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. sömu laga. Talið var að ríkissaksóknari hefði haft vald til að ákveða að lögreglustjórinn á Seyðisfirði skyldi krefjast farbanns yfir X á sama tíma og forræði rannsóknarinnar færðist til lögreglustjórans á Eskifirði. Var úrskurðurinn staðfestur að öðru leyti með vísan til forsendna.