Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 115. gr. a laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 23. mars 2007

133/2007

Ákæruvaldið (enginn) gegn Birni Rúnari Guðmundssyni (Grímur Sigurðarson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

B krafðist endurupptöku á máli, sem hafði verið lokið með áritun dómara á sektarboð samkvæmt 3. mgr. 115. gr. a laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Ekki var talið að B hefði, er hann krafðist endurupptöku málsins, fært fram varnir, sem gætu hafa haft áhrif á úrslit þess, sbr. 5. mgr. sömu greinar. Kröfu B var því hafnað.

Hæstiréttur birt 16. nóvember 2000

297/2000

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Einari Eiríki Hjálmarssyni (Helgi Birgisson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var stöðvaður af lögreglumanni, sem mælt hafði með ratsjá hraða bifreiðar, sem E ók á móti lögreglubifreiðinni. Mældist hraðinn 109 km á klukkustund, en leyfður hámarkshraði er 90 km á klukkustund á umræddum stað. E taldi sig hins vegar hafa ekið á 70-80 km hraða á klukkustund og neitaði að ljúka málinu með greiðslu sektar. Talið var sannað með framburði E og lögreglumannsins, svo og skýrslu sem undirrituð var af E á vettvangi, að honum hefði verið gerð grein fyrir niðurstöðu ratsjármælingar á hraða hans. Var talið að ekkert hefði komið fram í málinu, sem gæfi tilefni til að ætla að ranglega hefði verið staðið að mælingunni eða að vefengja bæri niðurstöðu hennar. Var talið sannað að E hefði ekið á þeim hraða, sem tilgreindur var í málatilbúnaði ákæruvalds og þar með brotið gegn 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Var E dæmdur til greiðslu sektar.