Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (málsmeðferð hjá Endurupptökudómi). nr. 15/2023

Landsréttur birt 24. október 2024

822/2024

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Margrét María Sigurðardóttir lögreglustjóri) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður)

Með úrskurði héraðsdóms var X gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála en skilyrði 1. mgr. 100. gr. laganna um að X yrði vistaður á stofnun þóttu ekki eiga við að svo stöddu. Í Landsrétti var fallist á að uppfyllt væru skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Fyrir Landsrétti lagði varnaraðili hins vegar fram læknisvottorð sérfræðings í geðlækningum þar sem fram kom að hann hefði verið fluttur til mats á bráðaþjónustu geðsviðs og í kjölfarið lagður inn á geðdeild vegna sjálfsvígshættu. Í vottorðinu kom meðal annars fram að hann væri of veikur til að útskrifast og gera mætti ráð fyrir að hann þyrfti að dvelja á geðdeild í að minnsta kosti viku til viðbótar. Að virtum gögnum málsins var því fallist á kröfu X um að hann sætti vistun á sjúkrahúsi.