Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum. nr. 14/2007
Sumarið 2007 stóð H að umfangsmiklum framkvæmdum á svokölluðum Byggðasafnsreit í Hafnarfirði sem náði að hluta inn á lóð H ehf. Fyrirhuguð framkvæmd var kynnt fyrir H ehf. sem veitti samþykki sitt fyrir því að farið yrði inn á lóð hans. Ekki var gerður skriflegur samningur um framkvæmdirnar og fyrirkomulag þeirra. Árið 2013 höfðaði H ehf. mál gegn H til heimtu skaðabóta vegna skemmda á fasteign sinni sem hann taldi að mætti rekja til uppgraftar og vinnu því samfara á lóðinni. Í dómi héraðsdóms var H gert að greiða H ehf. 4.865.699 krónur í skaðabætur. Í dómi Hæstaréttar kom fram að meta yrði samskipti aðila á þann veg að í reynd hefði komist á í millum þeirra munnlegur samningur um framkvæmd verksins og að leggja yrði til grundvallar að samþykki H ehf. við framkvæmdunum hefði verið bundið þeirri forsendu að hann yrði skaðlaus af þeim nema á annan veg væri samið. Ekki hefði komið fram að svo hefði verið gert. Af því leiddi að H hefði verið skylt að bæta tjón sem varð á fasteign H ehf. og gilti þá einu hvort það yrði rakið til H eða þeirra sem á hans vegum unnu. Talið var að H hefði ekki hnekkt niðurstöðu yfirmatsgerðar í málinu um að nauðsynlegt væri að byggja undirstöður undir fasteigninni og var sá kostnaðarliður því tekin til greina í Hæstarétti, en honum hafði verið hafnað í héraði. Var H gert að greiða H ehf. 5.415.699 krónur í skaðabætur.
Hafnarfjarðarbær dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem verktaki á vegum bæjarins olli.