Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 5. gr. laga nr. 139/2001 — Lög um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur

Hæstiréttur birt 28. nóvember 2013

397/2013

Orkuveita Reykjavíkur (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn Rúnari Lárussyni og innanríkisráðuneytinu til réttargæslu (Sigurður A. Þóroddsson hrl)

OR krafðist þess að úrskurður innanríkisráðuneytisins, um að fella úr gildi ákvörðun OR um álagningu vatnsgjalds á fasteign R, yrði ógiltur. OR hafði lagt vatnsgjald á fasteignina fyrir árið 2011 þegar húsið varð fokhelt í byrjun þess árs en fasteignin var ekki tengd við vatnsveitu OR fyrr en í apríl sama ár. Byggði OR á því að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 32/2004 hefði henni verið heimilt að krefja R um greiðslu vatnsgjalds þegar á þeim tíma er R hefði getað tengt eignina við vatnsveituna, án tillits til þess hvort hann hafi gert það. Að virtu orðalagi 1. mgr. 6. gr. laga nr. 32/2004, eins og það yrði skýrt í ljósi lögskýringargagna, var talið að um vatnsgjaldið færi eftir þeim reglum sem gilda um þjónustugjöld. Af því eðli gjaldsins leiddi að það yrði ekki lagt á nema gjaldandi fengi þá þjónustu sem svaraði til gjaldtökunnar. Hefði því verið óheimilt að heimta vatnsgjaldið áður en R naut þjónustunnar með því að eign hans yrði tengd við vatnsveituna. Var R því sýknaður af kröfu OR.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2013

E-2084/2012

Orkuveita Reykjavíkur (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn Rúnari Lárussyni og Innanríkisráðuneytinu til réttargæslu (Sigurður A. Þóroddsson hrl)

Stefnandi krafðist þess að úrskurður innanríkisráðuneytisins yrði felldur úr gildi en með honum var felld úr gildi ákvörðun stefnanda um álagningu vatnsgjalds á fasteign stefnda. Stefndi var sýknaður en ekki var fallist á rök stefnanda fyrir því að úrskurðurinn væri ólögmætur.