Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 16. gr. laga nr. 131/1997 — Lög um rafræna eignarskráningu verðbréfa
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi máli S ehf., K ehf. og G á hendur V hf., EJ og EG. Í málinu var þess krafist að lagt yrði lögbann við því annars vegar að V hf. afhenti hluti í félaginu til EJ og EG, sem greiðslu vegna samruna V hf. og U ehf., og hins vegar að V hf. skráði EJ og EG sem hluthafa í hlutaskrá félagsins á grundvelli ákvörðunar um samrunann. Hæstiréttur staðfesti hinn kærða úrskurð með vísan til þess S ehf., K ehf. og G hefðu ekki lögvarða hagsmuni af kröfum sínum í málinu, þar sem athafnir þær, sem krafist var lögbanns við, hefðu þegar farið fram með afhendingu hlutafjár til EJ og EG og rafrænni skráningu hlutafjárins á nöfn þeirra.
Ágreiningi um lögbann vísað frá dómi þar sem kröfugerð sóknaraðila varð eigi skýrð á annan veg en þann að dómari legði lögbann við tilteknum athöfnum en slík kröfugerð þótti í andstöðu við ákvæði laga um kyrrsetningu og lögbann svo og aðfararlaga.