Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994, með síðari breytingum. nr. 127/1996
S krafðist viðurkenningar á bótaskyldu Í vegna tjóns sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna breytinga á lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna nr. 1/1997, sbr. lög nr. 127/2016. S reisti kröfu sína á því að eftir breytinguna væri fyrirséð að hún myndi ekki njóta þeirra lífeyriskjara sem hún hefði notið hefði lögunum ekki verið breytt. Með úrskurði Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að vísa málinu frá dómi þar sem talið var ósannað að lagabreytingarnar hefðu leitt tjóns fyrir S og því hefði hún ekki sýnt fram á að hún hefði þá lögvörðu hagsmuni af úrlausn málsins sem áskildir væru í 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu ríkisins vegna lagabreytinga sem gerðar voru árið 2016 á lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfmanna, einkum að því er varðar skipulag og fjármögnun A-deildar sjóðsins. Byggði stefnandi á því að tjón hennar fælist annars vegar í lækkun sem lífeyrisgreiðslur til hennar muni sæta vegna afnáms ábyrgðar ríkisins á skuldbindingum sjóðsins og hins vegar á skertu framlagi til hennar úr lífeyrisaukasjóði þar sem framlag til þess sjóðs og varasjóðs dygðu ekki til að greiða henni óskertan lífeyri sem þeim væri ætlað að standa undir. Máli þessu var vísað frá dómi að kröfu stefnda þar sem talið var ósannað að umdeildar lagabreytingar muni leiða til tjóns fyrir stefnanda. Átti stefnandi því ekki lögvarða hagmuni af efnislegri úrlausn málsins og voru þar með ekki uppfyllt skilyrði fyrir málshöfðun á grundvelli 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991.