Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75/1981, með síðari breytingum. nr. 118/1997

Landsréttur birt 30. nóvember 2018

492/2018

Óskar Karl Guðmundsson (Tryggvi Agnarsson lögmaður) og Helga Guðný Jónsdóttir (Sævar Þór Jónsson lögmaður, 2. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Tekjuskattur. Aflahlutdeild.
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu kröfðust Ó og H ógildingar á tilteknum úrskurðum skattstjóra og ríkisskattstjóra þar sem gjaldfærðar fyrningar samkvæmt rekstrarskýrslum þeirra árin 2003 til 2008 voru lækkaðar, annars vegar með vísan til þess að þeim hefði verið óheimilt að hækka bókfært verð eigna í atvinnurekstri sínum með tilliti til matsverðs eignanna á hverju ári og hins vegar með vísan til þess að þeim hefði verið óheimilt að fyrna stofnkostnað vegna kaupa á aflahlutdeild. Þá laut ógildingarkrafa Ó og H að þeirri ákvörðun ríkisskattstjóra að hafna gjaldfærslu að tiltekinni fjárhæð vegna skerðingar á úthlutuðu aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2007 til 2008. Í héraðsdómi sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna kom fram að ekki hefði verið að finna heimild í lögum til að miða fyrningargrunn umræddra eigna við matsverð þeirra. Hefði úrskurður skattstjóra um endurákvörðun gjalda Ó og H til samræmis við stofnverð þeirra samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt því verið í samræmi við lög. Þá væri samkvæmt ótvíræðum fyrirmælum 1. mgr. 48. gr. sömu laga óheimilt að fyrna stofnkostnað við kaup á varanlegri aflahlutdeild. Árleg ákvörðun á aflamarki Ó og H hefði ekki falið í sér skerðingu á aflahlutdeild þeirra. Þá yrði ekki á það fallist að téð réttindi hefðu fallið niður eða verið skert í skilningi lokaorða 3. mgr. 48. gr. laganna. Samkvæmt framangreindu hefðu úrskurðir skattyfirvalda sem deilt væri um í málinu verið í samræmi við skýr og ótvíræð fyrirmæli laga.