Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 8. gr. laga nr. 118/1993 — Lög um félagslega aðstoð

Landsréttur birt 6. mars 2025

143/2024

A (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður, Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður, 1. prófmál)

A og T deildu um hvort A ætti rétt á endurhæfingarlífeyri samkvæmt 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð fyrir tilgreint tímabil. Hafði synjun T verið reist á því að A hefði ekki verið í virkri endurhæfingu á þeim tíma. Í dómi Landsréttar voru meðal annars rakin skilyrði 7. gr. laganna og tekið fram að hvorki í lögum né lögskýringar- gögnum væri skilgreint hvað endurhæfing í skilningi ákvæðisins fæli í sér. Þó yrði að ætla að greint væri á milli almennrar læknismeðferðar og annarrar skipulagðrar meðferðar sem hefði það gagngert að leiðarljósi að auka líkur á því að þeir sem glímdu við afleiðingar sjúkdóma og slysa gætu haldið áfram atvinnuþátttöku að endurhæfingu lokinni. Í ljósi gagna málsins þótti eðlilegt að T drægi þá ályktun að endurhæfing í skilningi 7. gr. laganna hefði ekki verið hafin á umræddum tíma. Loks var hafnað röksemdum A um að málsmeðferð T hafi farið í bága við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og að T hefði veitt ófullnægjandi leiðbeiningar samkvæmt 7. gr. sömu laga þannig að fella bæri ákvarðanir T úr gildi. Að því gættu var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu T.