Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 5. mgr. 47. gr. laga nr. 117/1993 — Lög um almannatryggingar

Hæstiréttur birt 13. mars 2008

518/2007

Tryggingastofnun ríkisins (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl) gegn Árna Þór Björnssyni (Kristinn Bjarnason hrl)

Ágreiningur aðila laut að lögmæti uppsagnar T á samningi við Á, sem var sjálfstætt starfandi svæfingarlæknir. Ástæðu uppsagnarinnar sagði T vera þá að Á hefði gerst sekur um stórkostlegt misferli í starfi, en Á var talinn hafa skráð rangar upplýsingar á reikninga og þannig krafið T um greiðslur fyrir mun lengri svæfingartíma en kæmi fram í svæfingarskýrslum. Af framlögðum gögnum í málinu þótti ljóst að Á hefði framvísað reikningum fyrir læknisverk langt umfram það, sem ráðgert væri í gjaldskrá svæfingarlækna. Samkvæmt mati T hafði Á brotið af sér af ásetningi og misferli hans verið stórkostlegt, en Á hefði ekki borið nokkuð fram í málinu er dregið gat réttmæti þessa mats T í efa. Þá var þeirri málsástæðu Á hafnað að ekki hefði verið gætt umsaminna og lögbundinna málsmeðferðarreglna áður en ákvörðun um uppsögnina var tekin. Var T sýknað af kröfu Á um ógildingu uppsagnarinnar.