Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 12. gr. laga nr. 117/1993 — Lög um almannatryggingar

Hæstiréttur birt 30. ágúst 2005

312/2005

Sveinbjörg Kristmundsdóttir (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf og Helga Ívarssyni (Kristín Edwald hrl)

S lenti í umferðarslysi í júní 2003 og slasaðist. Í málinu var ekki deilt um bótaskyldu SA og H, en ágreiningur aðila laut að útreikningi bóta og hvort greiðslur frá almannatryggingum og lífeyrissjóðum ættu að koma þar til frádráttar. S neitaði að upplýsa um rétt sinn til bóta frá almannatryggingum eða lífeyrissjóðum og hafði ekki heimilað stefndu að afla þeirra upplýsinga fyrir sína hönd. Á þeim tíma er S lenti í slysinu hafði skaðabótalögum nr. 50/1993 verið breytt með lögum nr. 37/1999, þar sem m.a. var gert ráð fyrir að til frádráttar bótum kæmu greiðslur af félagslegum toga, sem kæmu í hlut tjónþola vegna örorkunnar. S byggði bætur sínar á skaðabótalögum og gerði í málinu kröfu á hendur stefndu til greiðslu tiltekinnar fjárhæðar. Bar henni því að upplýsa um öll þau atriði sem gátu haft áhrif á útreikning bótanna. Með því að leggja ekki fram umbeðin gögn var krafa S það óljós og málatilbúnaður hennar svo óskýr að samræmdist ekki meginreglu laga um meðferð einkamála um skýran og glöggan málatilbúnað. Var málinu vísað frá dómi ex officio.

Hæstiréttur birt 3. desember 2003

438/2003

Óskar Geir Pétursson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Ó á hendur T var vísað frá dómi. Í tilefni af því að kröfugerð hans fyrir Hæstarétti var með tiltekinni lagfæringu var tekið fram að frávísunarúrskurði héraðsdóms yrði ekki skotið til Hæstaréttar til þess að fá lagt fyrir héraðsdómara að taka til efnismeðferðar kröfugerð í annarri mynd en þeirri, er þar lá fyrir. Þá var kröfugerð Ó fyrir héraðsdómi svo ónákvæm og óljós að efnisdómur varð ekki felldur á hana, sbr. d. lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.