Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 21. gr. laga nr. 110/2007 — Lög um kauphallir

Hæstiréttur birt 24. mars 2011

52/2010

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari) gegn Daníel Þórðarsyni (Jakob R. Möller hrl) og Stefni Agnarssyni (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

D og S voru sakfelldir fyrir markaðsmisnotkun með því að hafa á tímabilinu 25. janúar 2008 til 22. febrúar 2008, í sex tilvikum, lagt fram kauptilboð í tiltekin skuldabréf í þeim tilgangi að hafa áhrif á dagslokaverð bréfanna og gefa þannig misvísandi til kynna eftirspurn eftir slíkum bréfum og verð þeirra. Var háttsemi þeirra talin varða við a. lið 1. töluliðar 1. mgr. 117. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Refsing hvors ákærða var ákveðin fangelsi í 6 mánuði. Í dómi Hæstaréttar var fundið að drætti á rekstri málsins og því að ríkissaksóknari hefði ekki haft samráð við verjendur ákærðu við gerð málsgagna sem þóttu umfangsmeiri en tilefni var til.