Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 11. gr. laga nr. 106/2000 — Lög um mat á umhverfisáhrifum
Ógiltur var hluti úrskurðar setts umhverfisráðherra frá 30. janúar 2003 þar sem heimiluð var gerð set- og miðlunarlóns norðar og vestan Þjórsárvera og veituskurðar í Þjórsárlón án undanfarandi mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Dómurinn taldi að fara hefði átt fram mat á umhverfisáhrifum. Að öðru leyti var hafnað kröfu um ógildingu úrskurðar setts umhverfisráðherra. Þá var hafnað kröfu um ógildingu úrskurðar Skipulagsstofnunar frá 12. ágúst 2002.