Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 103/1994 — Lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

Hæstiréttur birt 20. mars 2003

424/2002

Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara (Karl Axelsson hrl) gegn Skeljungi hf (Gestur Jónsson hrl)

S hf. krafðist þess að viðurkennt yrði að við útreikning á flutningsjöfnun á gasolíu frá 1. desember 1998 til og með 31. október 1999 hefði F borið að fara eftir þeim flutningstöxtum sem ákveðnir voru á fundi stjórnar F í desember 1998. Í málinu var deilt um túlkun á niðurstöðu héraðsdóms í fyrra máli F og S hf., sem ekki var áfrýjað, þar sem fallist var á kröfu S hf. um að felld yrði úr gildi ákvörðun stjórnar F um að afturkalla fyrrnefnda ákvörðun frá desember 1998. Talið var að umrædd ákvörðun stjórnar F hefði verið tvíþætt og afturköllunin einnig. Fyrrnefnd niðurstaða héraðsdóms um að felld yrði úr gildi afturköllun á þessari ákvörðun F leiddi því til þess að báðir þættir hennar voru í fullu gildi. Hefði S hf. höfðað það mál á þeim grunni að afturköllunin hefði verið ólögmæt frá upphafi og yrði að líta svo á að héraðsdómur hefði fallist á það en af því leiddi að réttarástand var orðið eins og engin afturköllun hefði verið gerð. Var því fallist á kröfur S hf.