Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Hvort réttindi tilheyri þrotabúi
Sóknaraðili slasaðist tvívegis á árinu 2007 og fékk greiddar bætur vegna þess. Árið 2010 var bú hans tekið til gjaldþrotaskipta. Hann krafðist þess að fá afhenta fjármuni af bankareikningi sínum, utan skuldaraðar, og væru þeir í raun bætur þær sem hann hefði fengið og ættu ekki að koma til skipta. Þrotabúið taldi bótaféð ekki hafa verið sérgreint nægilega til að svo mætti vera. Talið var, að sýnt hefði verið nægilega fram á uppruna fjárins til að fallast mætti á kröfuna.
Af hálfu skiptastjóra ógjaldfærs dánarbús var krafist úrskurðar dómstólsins um skyldu varnaraðila til þess að afhenda Kjarvalsmálverk og klukku inn í búið, með vísan til 3. mgr. 82. gr. laga um gjaldþrotaskipti. Hafði varnaraðili tekið við óðalsrétti af föður sínum árið 2004 og voru hlutir þessir staðsettir á heimili hennar á óðalsjörðinni. Varnaraðili krafðist þess að kröfunni yrði hafnað þar sem um fylgifé óðals væri að ræða, sem þannig væru undanþegnir aðgerðum sem þessum, en ekki hluti sem hefðu fallið í hlut hins látna eftir andlát foreldra hans. Kröfu sóknaraðila var hins vegar hafnað á þeim grunni að ekki þótti sýnt að eignarréttur hins látna hafi verið nægilega skýr.