Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Heimilisuppbót.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2022

E-3542/2021

A (Áslaug Benediktsdóttir lögmaður) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Tryggingastofnun synjaði umsækjanda um heimilisuppbót þar sem viðkomandi umsækjandi var skráður í óvígða sambúð skv. skráningu í Þjóðskrá á umsóknartíma þrátt fyrir að eiginlegri sambúð hafi lokið nokkrum árum áður. Niðurstaða dómsins var að túlka bæri 1. mgr. 8. gr. laga um félagslega aðstoð nr. 99/2007 með vísan til 49. gr., sbr. 7. tl. 2. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007 á þann máta að orðið einhleypur hefði þá þýðingu að um væri að ræða einstakling sem ekki væri skráður í sambúð eða í hjúskap skv. skráningu Þjóðskrár. Ekki var talið að málmeðferð stefnda, stjórnvaldsákvörðunin eða úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála brytu gegn lögmætisreglu, leiðbeiningarskyldu, rannsóknarreglu, andmælareglu eða jafnræðisreglu stjórnsýslulaga eða stjórnarskrárinnar og stefndi sýknaður af kröfum stefnanda um að synjun Tryggingastofnunar á umsókn stefnanda um heimilisuppbót og eftirfarandi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála yrðu ógilt.