Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Galli.
Stefndi var dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna galla á verki sem hann tók að sér við flotun og flísalögn á gólfum húss stefnenda. Ekki var fallist á með stefnda að stefnendur hefðu verið í samningssambandi við annan aðila um flísalögnina heldur var stefndi ekki talinn hafa sýnt fram á annað en stefnendur hefðu mátt ætla að stefndi hefði tekið að sér bæði flotunina og flísalögnina. Niðurstaða mats dómkvadds matsmanns var að vinnubrögð við bæði flotunina og flísalögnina væru ófagleg, gölluð og að kostnaður við umbætur myndi nema meira en tvöfalt hærri fjárhæð en samanlagðir reikningar fyrir flotunina og flísalögnina. Var stefndi dæmdur til greiðslu skaðabóta á grundvelli matsins þó að frádregnum fjárhæðum hvors reiknings, annars vegar fyrir flotunina og hins vegar fyrir flísalögnina þar sem tjónið yrði að öðrum kosti ofbætt.
Stefnda sýknuð af kröfu um greiðslu reiknings vegna flísalagnar. Ekki þótti sýnt fram á að samningssamband hefði stofnast milli aðila um flísalögnina en stefnda hafði samið um verð og eingöngu verið í samskiptum við þann aðila sem tók að sér að flota sömu gólf. Stóð hún í þeirri trú að samningssamband hennar væri við þann aðila. Var stefnda sýknuð af kröfum stefnanda vegna aðildarskorts stefnanda.
Stefnda sýknuð af kröfu um greiðslu reiknings vegna flotunar gólfs. Í málinu lá fyrir mat dómkvadds matsmanns þar sem ófagleg vinnubrögð við flotun voru staðfest og þar með galli á verkinu. Matsmaður lagði mat á kostnað við úrbætur vegna gallans og nam sá kostnaður mun hærri fjárhæð en reikningurinn sem stefnandi krafðist greiðslu á.
Aðalstefndu sýknuð af kröfum aðalstefnenda vegna galla á húsnæði þar sem tilgreining um fóðrun frárennslislagna í söluyfirliti var ekki talin til saknæmrar háttsemi seljenda né var umfang gallans nægjanlegt til að teljast rýra verðgildi fasteignarinnar svo nokkru varðaði, sbr. 18. gr laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Aðalstefnendur voru dæmdir til greiðslu eftirstöðva kaupverðs ásamt dráttarvöxtum, gegn útgáfu afsals af hálfu aðalstefndu.
Seljendum fasteignar var gert að greiða kaupendum hennar skaðabætur vegna galla á eigninni.