Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Vinnuslys líkamstjón skaðabætur tilkynning

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2025

E-1000/2025

A (Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður) gegn B hf og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda vinnuveitanda síns vegna vinnuslyss sem hún varð fyrir er hún féll úr stiga við að þrífa ryk af vegg vinnustaðar síns. Slysið hafði ekki verið tilkynnt til Vinnueftirlitsins fyrr en 8 dögum eftir að það átti sér stað. Var ekki talið að rannsókn Vinnueftirlits hefði leitt annað og meira í ljós en ráða mætti af gögnum málsins og framburði vitnis fyrri dómi. Hafði því brot stefnda á reglum um tilkynningaskyldu á vinnuslysum í 79. Gr. laga nr. 46/1980 ekki áhrif við mat á sönnun í málinu. Var verkið talið einfalt og ekki talið óforsvaranlegt að nota einfaldan stiga við verkið. Ekki var fallist á að verkstjórn hafi verið áfátt eða að gæta hafi þurft leiðbeininga til stefnanda við framkvæmd verksins eða notkun stigans umfram það sem gert var. Voru stefndu, atvinnurekandinn og vátryggjandi hans, sýknaðir af kröfum stefnanda. Lykilorð: vinnuslys líkamstjón skaðabætur tilkynning