Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Viðurkenning bótaskyldu

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2025

E-3488/2024

Ferro Zink hf (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Haukur Örn Birgisson lögmaður)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótarétti úr véla- og tækjatryggingu og rekstrarstöðvunartryggingu hjá stefnda vegna tjóns er varð vegna leka á zinkdeiglu. Talið var sannað með matsgerð dómkvadds matsmanns að tjónið hafi orsakast af skyndilegri og ófyrirséðri bilun. Hafnað var mótbárum stefnda um að undanþáguákvæði trygginganna ættu við og var bótaskylda staðfest og stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2025

E-3583/2024

Bílamiðstöðin ehf (Ásgeir Helgi Jóhannsson lögmaður) gegn Frumherja hf. (Sigmar Páll Jónsson lögmaður) og Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Tjón varð á rafmagnsbifreið stefnanda er reynt var að gangsetja hana rafmagnslausa að lokinni skoðun hjá stefnda. Þótti sannað að tjónið hafi orðið af völdum þess að starttæki í eigu stefnda sem notað hafi verið til verksins hafi verið stillt á of háan straum, en á því hafi stefndi borið ábyrgð. Var bótaskylda stefnda vegna tjónsins viðurkennd. Hins vegar var ekki fallist á að tjónið félli undir skilmála ábyrgðartryggingar stefnda, þar sem það hafi ekki orðið við skoðun bifreiðarinnar né af völdum hennar.