Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Val tilboða.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna missis hagnaðar, sem leitt hafi af þeirri ákvörðun stefnda að ganga ekki til samninga við stefnanda um holræsa- og gatnahreinsun á grundvelli útboðs stefnda í janúar 2021. Stefnandi taldi að stefnda hefði borið að hafna tilboði lægstbjóðanda og ganga til samninga við sig, þar sem tilboð lægstbjóðanda hafi ekki uppfyllt skilyrði útboðsins. Til vara krafðist stefnandi viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna kostnaðar stefnanda við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboðinu. Að mati dómsins var ósannað að tilboð lægstbjóðanda hafi ekki uppfyllt kröfur útboðsins. Hins vegar voru tilteknir annmarkar á framkvæmd útboðsins af hálfu stefnda, en þar sem stefnandi sýndi ekki fram á að þeir hefðu haft áhrif á möguleika hans að hljóta samninginn var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.