Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá þriggja barna þeirra, lögheimili, umgengni og greiðslu meðlags.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá barna þeirra, lögheimili, meðlag og umgengni.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili sonar þeirra sem og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna og umgengni. Með úrskurði héraðsdóms var forsjá drengsins og lögheimili hans falið B. Þá var A gert að greiða B einfalt meðlag og kröfu um umgengni A við drenginn hafnað á þeim grundvelli að það væri drengnum fyrir bestu eins og á stæði. Landsréttur vísaði meðal annars til þess að þrátt fyrir að sonur málsaðila hefði allt frá í september 2023 verið vistaður utan heimilis A, og A jafnframt sætt gæsluvarðhaldi hluta þess tíma, yrði ekki talið að sú staða væri uppi að aðstæður drengsins kæmu niður á öryggi hans og stöðugleika. Í þeim efnum var einnig litið til gagna er vörðuðu aðstæður B. Landsréttur taldi að endingu að rök stæðu ekki til þess að raska högum drengsins með breytingu á skipan forsjár með úrskurði til bráðabirgða áður en fullnægjandi mat hefði farið fram á forsjárhæfni hvors málsaðila um sig og aðstæðum þeirra. Ákvæði hins kærða úrskurðar um skipan forsjár, lögheimilis og meðlags til bráðabirgða voru því felld úr gildi og kröfu A um að B skyldi ekki njóta umgengnisréttar við drenginn á meðan forsjármál aðila væri til meðferðar hjá dómstólum hafnað.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá sonar þeirra, lögheimili, umgengni og greiðslu meðlags.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá tveggja barna þeirra, lögheimili og umgengni.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um lögheimili barna þeirra, meðlag og umgengni. Með úrskurði héraðsdóms var tekin til greina krafa B um lögheimili barnanna til bráðabirgða þar til leyst hefði verið úr ágreiningi um lögheimili þeirra með dómi. Jafnframt var A gert að greiða einfalt meðlag með hvoru barni frá uppkvaðningu úrskurðarins og þá var kveðið á um umgengni A til bráðabirgða. Fyrir lá að börnin bjuggu hjá báðum foreldrum þar til þau slitu sambúð í október 2023. Skömmu síðar hafi B flutt með börnin af sameiginlegu heimili aðila en A hafi áfram búið þar og börnin notið umgengni við hann. Í úrskurði Landsréttar kom fram að sú ákvörðun B að flytja með börnin af fyrrum sameiginlegu heimili hennar og A hafi augljóslega haft röskun á högum þeirra í för með sér. Í ljósi þess skamma tíma sem liðinn var frá þeirri breytingu á högum barnanna og umgengni þeirra við A undanfarna mánuði þótti ekki hafa verið sýnt fram á að hagsmunir barnanna stæðu til þess að flytja þyrfti lögheimili þeirra til bráðabirgða til B á meðan mál aðila væri til meðferðar fyrir dómi. Taldi Landsréttur að slík röskun gæti ekki ein og sér réttlætt ákvörðun um að breyta skráningu á lögheimili barna til bráðabirgða. Var því hafnað kröfu B um að lögheimili barnanna yrði hjá henni til bráðabirgða og henni gert að greiða einfalt meðlag með hvoru barni frá uppkvaðningu úrskurðarins ásamt því að kveðið var á um umgengni hennar við börnin.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um lögheimili og umgengni tveggja barna þeirra.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá tveggja barna þeirra, lögheimili og umgengni.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um umgengni við börn aðila.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að breytt yrði því réttarástandi milli hans og B og þriggja barna þeirra, sem komið var á með úrskurði Landsréttar í máli nr. 329/2022. Einnig hafnaði héraðsdómur að svo stöddu kröfu A um að fresta meðferð forsjármáls milli A og B. Með gagnkæru kærði B þann hluta úrskurðar héraðsdóms sem laut að málskostnaðarkröfu hennar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að raska ekki réttarástandi því sem komið var á til bráðabirgða með úrskurði Landsréttar í máli 329/2022. Kröfum A er lutu að forsjá barna aðila til bráðabirgða, lögheimili þeirra, meðlagsgreiðslum og umgengni var því hafnað. Landsréttur vísaði aftur á móti frá kröfu A um að forsjármáli hans og B yrði frestað þar sem kæruheimild skorti. Þá var ekki tekin efnisleg afstaða til málskostnaðarkröfu B fyrir héraðsdómi.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá tveggja barna þeirra, lögheimili, umgengni og greiðslu meðlags.
A krafðist þess að honum yrði falið lögheimili barns hans og B til bráðabirgða á meðan forsjármál milli aðila væri rekið fyrir dómi. Í úrskurði héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að við mat á kröfu A yrði ekki fram hjá því litið að gögn málsins og skýrslur fyrir dóminum bentu til þess að viss ósveigjanleika hefði gætt hjá A varðandi umgengni og samskipti B við barnið. Einnig var talið að A hefði að nokkru gert B erfitt fyrir að rækja umgengni sína hvað varðaði fyrirkomulag ferða barnsins milli foreldra. Þannig hefði regluleg umgengni B við barnið ekki komist á fyrr en með bráðabirgðaúrskurði sýslumanns í maí 2022. Í ljósi þeirrar forsögu taldi dómurinn að gefa yrði B og barninu ráðrúm til að treysta tengsl sín að nýju og jafnframt yrði að gefa barninu ráðrúm til að fóta sig í nýju umhverfi og átta sig betur á viðhorfum sínum til búsetu. Rök voru því ekki talin standa til þess að hrófla að svo stöddu við lögheimili barnsins hjá B. Þá var A gert að greiða B áfram meðlag með barninu, auk þess sem mælt var fyrir um tilhögun umgengni við barnið.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um hvernig skyldi fara með lögheimili barns þeirra, meðlag og umgengni, sbr. 1. mgr. 35. gr. barnalaga nr. 76/2003. Fyrir Landsrétti krafðist sóknaraðili þess að honum yrði ákvarðaður rýmri umgengnisréttur en kveðið var á um í hinum kærða úrskurði, en undi niðurstöðu héraðsdóms að öðru leyti. Í úrskurði Landsréttar var meðal annars rakið að af gögnum málsins yrði ekki annað ráðið en að eftir uppkvaðningu hins kærða úrskurðar hafi umgengni sóknaraðila við barnið gengið vel fyrir sig. Í ljósi þess þótti rétt að ákvarða umgengnisrétt rýmri en þar var kveðið á um.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili þriggja barna þeirra, umgengni og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um forsjá barnanna, lögheimili þeirra og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna. Héraðsdómur hafði hafnað kröfu A um umgengni en Landsréttur taldi þýðingarmikið að börnin nytu einhverra samvista við föður sinn á meðan forsjármáli aðila væri til lykta leitt. Var því mælt fyrir um umgengni barnanna við A með nánar tilgreindum hætti.
Kærður var úrskurður héraðsdóms um bráðabirgðaforsjá og lögheimili og umgengni til bráðabirgða. Fyrir Landsrétti laut ágreiningur A og B eingöngu að umgengni B við son málsaðila til bráðabirgða. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að B skyldi ákveðin umgengni til bráðabirgða við drenginn. Í ljósi nýrra gagna sem lögð voru fyrir Landsrétt um breyttar aðstæður B var hins vegar mælt fyrir um takmarkaðri umgengni en gert var í úrskurði héraðsdóms.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um umgengni við dóttur þeirra.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um lögheimili barns þeirra og umgengni. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að lögheimili barnsins skyldi vera hjá B þar til endanlegur dómur í forsjármáli aðila liggur fyrir. Þá staðfesti dómurinn niðurstöðu héraðsdóms um tímabundið fyrirkomulag á umgengni A við barnið og að henni yrði gert að greiða einfalt meðlag með barninu.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um umgengni við son þeirra.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um lögheimili barns þeirra og umgengni. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að lögheimili barnsins skyldi vera hjá B þar til endanlegur dómur í forsjármáli aðila liggur fyrir. Þá staðfesti dómurinn niðurstöðu héraðsdóms um tímabundið fyrirkomulag á umgengni.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um lögheimili barns þeirra, umgengni og greiðslu meðlags. Landsréttur taldi rétt að lögheimili barnsins yrði hjá A þar sem barnið hafði búið þar frá sambúðarslitum foreldranna. Þá var fallist á kröfu B um jafna umgengni hans við barnið þar til endanlegur dómur gengi í málinu og honum gert að greiða einfalt meðlag.
Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að lögheimili barna málsaðila skyldi vera hjá A til bráðabirgða þar til endanlegur dómur í skilnaðar- og forsjármáli aðila liggur fyrir. Þá staðfesti rétturinn einnig niðurstöðu héraðsdóms um fyrirkomulag meðlagsgreiðslna B og umgengni hans við börnin.