Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Skráning upplýsinga

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2023

E-5303/2022

Einar Kristján Haraldsson (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar bætur að álitum vegna ólögmætrar uppsagnar en hafnað var miskabótakröfu hans þar sem ekki var talið að uppsögn hans hefði verið framkvæmd með meiðandi hætti. Niðurstaða dómsins um ólögmæti uppsagnarinnar var á því reist að þótt sýnt þætti að rót hennar væri að rekja til skipulagsbreytinga í kjölfar sameiningar tveggja ríkisstofnana hefði samkvæmt dómaframkvæmd borið að leggja viðhlítandi mat á hæfni stefnanda, m.a. í samanburði við aðra starfsmenn, þegar til þess kom að að ákveða hvaða starfsmönnum ætti að segja upp. Hefði stefndi ekki sýnt fram á að í aðdraganda uppsagnarinnar hefði málið verið nægilega rannsakað í skilningi 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hvað varðaði hæfni stefnanda. Nyti enda hvorki við skriflegra gagna um hvað legið hafi að baki niðurstöðu mats á færni stefnanda né hefði verið úr því bætt með sönnunarfærslu fyrir dóminum, auk þess sem engin gögn lægju fyrir dóminum um mat á öðrum starfsmönnum en stefnanda eða hæfni hans í samanburði við þá. Taldi dómurinn enn fremur að í því skyni að upplýsa málið betur hefði verið rétt að veita stefnanda andmælarétt áður en til uppsagnar hans kom.