Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Skilorðsbundin frestun ákæru

Landsréttur birt 16. október 2020

163/2019

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Þorbjörg Inga Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var með ákæru 31. maí 2018 borinn sökum um brot gegn 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með bréfi embættis héraðssaksóknara 23. apríl sama ár hafði hann verið boðaður á skrifstofu embættisins 3. maí 2018 til kynningar á ákvörðun embættisins um að ljúka málinu með útgáfu skilorðsbundinnar frestunar ákæru fyrir brot gegn 199. gr. almennra hegningarlaga samkvæmt heimild í 56. gr. sömu laga, sbr. 2. mgr. 146. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. X mætti ekki á hinum boðaða tíma en upplýsti fyrri verjanda sinn um það með smáskilaboðum 18. maí 2018 að hann hefði „ákveðið að taka frestuninni“. Í dómi Landsréttar var meðal annars vísað til þess að fullnægt hefði verið lagaskilyrðum 56. gr. almennra hegningarlaga til að falla frá saksókn á hendur X með skilorðsbundinni frestun ákæru. Ákvörðun þess efnis hafi verið birt honum með fyrrgreindu bréfi þar sem skýrlega hafi verið tekið fram að ákveðið hefði verið að ljúka málinu á þann veg og vísað til viðeigandi lagaákvæða. Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hefði sú ákvörðun orðið bindandi eftir að bréfið hafi verið komið til X. Þar sem héraðssaksóknari hefði verið bundinn af lögmætri ákvörðun sinni hafi honum verið óheimilt að hverfa frá henni og gefa út ákæru í málinu nema að uppfylltum skilyrðum 4. mgr. 56. gr. almennra hegningarlaga. Þar sem þeim skilyrðum hafi ekki verið fullnægt hefði brostið heimild til útgáfu ákæru í málinu. Því var málinu vísað frá héraðsdómi.