Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Ráðstöfun sakarefnis
Ekki var fallist á að 7. gr. innheimtulaga feli það í sér að einungis megi senda innheimtuviðvaranir til skuldara með bréfpósti en að ákvæðið heimili ekki sendingar með rafrænum hætti.
S ehf. höfðaði mál, gegn K ehf. og L slf. til vara, til greiðslu nánar tilgreindrar fjárhæðar og til viðurkenningar á skaðabótaábyrgð vegna ætlaðs tjóns sem stafaði af kyrrsetningu tilgreindra fasteigna í eigu S ehf. Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem var vísað frá dómi annars vegar kröfum gagnvart L slf. á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 og hins vegar viðurkenningarkröfu á hendur K ehf. þar sem hún var talin varða sama tjón og fjárkrafan tæki til að hluta og færi því gegn d- og e-lið 1. mgr. 80. gr. laga n.r 91/1991. Í úrskurði Landsréttar kom fram að sóknaraðili hefði með beiðni sinni til Endurupptökudóms vegna atvika sem liggja máli þessu til grundvallar ekki ráðstafað sakarefni þess. Landsréttur taldi aftur á móti að fjárkrafan og viðurkenningarkrafan sköruðust hvað varðaði ætlað tjón vegna kyrrsetningar fasteignanna Selbrautar 82 á Seltjarnarnesi og Ósgerði í Ölfusi. Að því leyti sem fjárkrafa og viðurkenningarkrafa sóknaraðila sköruðust hefði S ehf. ekki lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr viðurkenningarkröfunni. Þá væri í stefnu málsins ekkert fjallað um það í hverju annað tjón S ehf. vegna kyrrsetningar framangreindra tveggja fasteigna gæti falist. Væri málatilbúnaður S ehf. að því leyti ekki í samræmi við kröfur e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. S ehf. hefði því hvað þennan þátt viðurkenningarkröfu sinnar varðaði ekki reifað með viðhlítandi hætti þau atriði sem væru skilyrði þess að viðurkenningarkrafa yrði höfð uppi á grundvelli 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Framangreindir réttarfarsannmarkar væru aftur á móti ekki fyrir hendi varðandi þann þátt viðurkenningarkröfu S ehf. sem lyti að ætluðu tjóni hans vegna þess að fasteignirnar Eyrarvegur 2 á Selfossi og Egilsstaðir í Ölfusi voru kyrrsettar. Var úrskurður héraðsdóms því staðfestur að öðru leyti en því að lagt var fyrir héraðsdóm að taka til úrlausnar þann þátt viðurkenningarkröfunnar er laut að bótaábyrgð vegna kyrrsetningar fasteignanna Eyrarvegs 2 á Selfossi og Egilsstaða í Ölfusi.