Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Norræn handtökuskipun
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 21. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni um afhendingu X á grundvelli norrænnar handtökuskipunar, með nánar tilgreindum skilyrðum, var staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 3. mgr., sbr. 1. mgr. 21. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, sbr. 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í úrskurði Landsréttar kom fram að X væri eftirlýst samkvæmt norrænni handtökuskipun en í henni kæmi fram að X hefði sótt þrjú börn sín erlendis frá og ferðast með þau til Íslands gegn vilja föður barnanna sem færi með forsjá þeirra. Fyrir lægi að börnin dveldu enn hér á landi í trássi við vilja föður þeirra. Þá hefði X ekki afhent börnin til föður þeirra þrátt fyrir úrskurð Landsréttar 31. janúar 2023 um heimild föðurins til að fá börnin afhent með beinni aðfarargerð. Auk þess hefði X tekið börnin úr skóla í lengri tíma og dvalið með þau á óþekktum stöðum fjarri lögheimili þeirra. Var talið nægilega fram komið að hætta væri á því að X færi úr landi eða leyndist ellegar kæmi sér með öðrum hætti undan málsókn í sakamáli sem höfðað hafði verið á hendur henni erlendis. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem talið var að skilyrði laga nr. 12/2010 um handtöku og afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða (norræn handtökuskipun) væru uppfyllt til að afhenda mætti X finnskum yfirvöldum samkvæmt handtökuskipun þeirra.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)
gegn
X (
Hreinn Loftsson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem talið var að skilyrði laga nr. 12/2010 um handtöku og afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða (norræn handtökuskipun) væru uppfyllt til að afhenda mætti X dönskum yfirvöldum samkvæmt handtökuskipun þeirra.