Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Meðábyrgð tjónþola
Stefnandi slasaðist við störf sín fyrir vátryggingartaka þegar hann féll ofan í grunn. Hið stefnda tryggingarfélag féllst á að bæta 2/3 tjóns stefnanda að öðru leyti en er varðaði lyfjakostnað. Deilt var um hvort stefnda skyldi gert að bæta að fullu tjón stefnanda, auk þess sem deilt var um hvort stefndi skyldi greiða stefnanda lyfjakostnað. Talið var að stefnandi hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi í skilningi 1. mgr. 23. gr. a skaðabótalaga nr. 50/1993. Þá var talið að stefnandi hefði ekki fært sönnur á þann lyfjakostnað sem hann krafðist. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.