Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Mótbárutap
K og A deildu um reikning sem B gaf út til K vegna vinnu samkvæmt verksamningi en B hafði framselt kröfuna samkvæmt reikningnum til A. Fyrirsvarsmaður K undirritaði reikninginn um framsal B til A þar sem lýst var samþykki hans. K lýsti síðan yfir riftun verksamningsins og hafnaði greiðslu reikningsins til A með vísan til vanefnda B. Í dómi Landsréttar kom fram að fyrir lægi að A hefði með höndum fjármálastarfsemi sem fælist í því að kaupa útistandandi viðskiptakröfur fyrirtækja. Með vísan til þess sem fram væri komið um viðskipti aðila og þeirra skilmála sem giltu um framsal kröfunnar í stimpluðum texta á reikningnum yrði að leggja til grundvallar að fyrirsvarsmanni K hafi mátt vera ljóst að undirritunar og samþykkis hans á reikninginn hafi verið aflað vegna framsals kröfunnar til staðfestingar á því að hann myndi ekki hreyfa mótbárum við reikningnum gagnvart A. Áfrýjandi hefði því glatað rétti sínum til að hafa uppi mótbárur sem lytu að vanefndum B sem útgefanda reikningsins.