Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Móðerni
Hilda Hafsteinsdóttir (sjálf) gegn
Jórunni Sigríði Sveinbjörnsdóttur (enginn)
H höfðaði mál og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að J væri ekki móðir sín. Héraðsdómari taldi að H hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úr því skorið fyrir dómi hvort J teldist móðir hennar og var henni heimilað að krefjast dóms um kröfuna með lögjöfnun frá 1. mgr. 52. gr. barnalaga nr. 20/1992. Varð niðurstaða héraðsdóms sú að fæðingarskýrsla og niðurstöður erfðamarkarannsóknar, sem gerð var á H og J, bæru með sér að H væri dóttir J og væru yfirgnæfandi líkur fyrir því að J væri móðir H. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest og kröfum H hafnað.