Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Kynbundinn launamunur
B höfðaði mál gegn A þar sem hún taldi sig hafa sætt ólögmætri mismunun við ákvörðun launa af hálfu stofnunarinnar. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var af Landsrétti, var rakið að óumdeilt væri að verulegur munur hefði verið á launum og öðrum starfskjörum B, sem er kona, og tiltekins karlkyns lögfræðings hjá A. Féllst héraðsdómur á með B að í ákvörðun A um laun hennar hefði falist mismunun sem hefði farið í bága við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og síðar 1. mgr. 18. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Í dómnum var því jafnframt slegið föstu að á þeirri saknæmu og ólögmætu háttsemi bæri A bótaábyrgð, enda hefði B orðið fyrir fjártjóni af völdum háttseminnar, sem talið var nema þeim mun sem verið hafði á launum hennar og tiltekins karlskyns lögfræðings hjá stofnuninni. Þá var A einnig gert að greiða B miskabætur.
Fallist var á kröfu stefnanda um bætur vegna fjártjóns og miska vegna kynbundins launamunar sem stefnandi sætti þegar hún starfaði hjá stefndu.