Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Kynbundin áreitni
A höfðaði mál á hendur B ohf. í kjölfar þess að henni var sagt upp störfum og krafðist þess að viðurkennd yrði skaða- og miskabótaskylda B ohf. vegna ólögmætrar uppsagnar. Byggði A einkum á því að uppsögnin hefði grundvallast á því að hún hefði kvartað undan framkomu yfirmanns síns, framkvæmdastjóra B ohf., skömmu áður. B ohf. byggði á hinn bóginn á því að uppsögnin ætti sér rætur í því að A hefði ekki staðið undir væntingum sem starfsmaður. Í dómi Landsréttar er rakið að samkvæmt 1. mgr. 27. gr. þágildandi laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla væri atvinnurekanda óheimilt að segja starfsmanni upp störfum sökum þess að hann hafi krafist leiðréttingar á grundvelli laganna, og skv. 3. mgr. sömu greinar skuli atvinnurekandi sýna fram á að uppsögn grundvallist ekki á leiðréttingarkröfu starfsmanns ef leiddar eru líkur að því að gengið hafi verið gegn ákvæðinu. Af málsgögnum mætti ráða að B ohf. hefði lengst af borið traust til A, fjölgað verkefnum hennar, aukið ábyrgð og að rætt hefði verið um launahækkun henni til handa. Þá hefði B ohf. farið með kvörtun A sem samskiptavandamál en ekki sem kvörtun um kynbundna áreitni, þrátt fyrir að tilefni væri til þess, en málsgögn báru með sér að A og aðrar konur hefðu margsinnis kvartað yfir framferði yfirmanns hennar áður. Félagið hefði hvorki virkjað ferla sína í eineltis-, áreitis- eða ofbeldismálum né fylgt þeim reglum sem kveðið væri á um í reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Þannig lágu ekki skýrt fyrir í málinu upplýsingar um lyktir eða árangur þeirrar úrvinnslu sem kvörtun A fékk. Með vísan til 3. mgr., sbr. 1. mgr. 27. gr. laga nr. 10/2008 var talið að B ohf. hefði ekki tekist að hnekkja líkum á því að uppsögnin hefði grundvallast á leiðréttingarkröfu A. Niðurstaða dómsins var því sú að viðurkennt var að B ohf. bæri skaðabótaábyrgð vegna fjárhagslegs tjóns sem A kynni að hafa orðið fyrir vegna uppsagnarinnar og miskabótaábyrgð vegna meingerðar í garð A í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.