Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

13 dómar fundust

Lykilorð: Gæsluvarðhald. D. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991

Hæstiréttur birt 7. september 2006

482/2006

Lögreglustjórinn í Reykjavík gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)

Fallist var á að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Kröfu um tilhögun gæsluvarðahaldsvistar hans var vísað frá Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 3. ágúst 2005

342/2005

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Böðvar Bragason lögreglustjóri) gegn X (enginn)

Hæstiréttur staðfesti úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála með þeirri breytingu að gæsluvarðhaldinu var markaður skemmri tími.

Hæstiréttur birt 26. apríl 2005

169/2005

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)

X hafði ítrekað haft í hótunum um að beita nafngreinda menn ofbeldi, þar á meðal A. Hafði X setið fyrir A fyrir utan heimili hans og ráðist að honum með hnefahöggum þegar hann kom heim til sín. Fallist var á kröfu L um geðrannsókn og gæsluvarðhald með vísan til d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 12. júlí 2001

263/2001

Lögreglustjórinn í Hafnarfirði (enginn) gegn X (Guðmundur Óli Björgvinsson hdl)

X játaði að hafa ráðist á móður sína með skærum og veitt henni áverka á hálsi. L krafðist gæsluvarðhalds yfir X og að honum yrði gert að sæta sérfræðirannsókn á andlegum og líkamlegum þroska og heilbrigðisástandi. Héraðsdómur féllst á kröfu L um geðrannsókn og úrskurðaði X í gæsluvarðhald með vísan til d-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdómara með vísan til forsendna hans.

Hæstiréttur birt 28. júní 1999

256/1999

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Hákoni Rúnari Jónssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)

Úrskurður héraðsdóms um að H skyldi sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans væri ólokið fyrir Hæstarétti var staðfestur með vísan til c. og d. liða 1. mgr. 103. gr. og 106. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 4. maí 1999

177/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn Gauta Ólafssyni (enginn)

Úrskurður héraðsdóms um að G sætti gæsluvarðhaldi var staðfestur með vísan til c. og d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 19. mars 1999

118/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)

Krafist var gæsluvarðahalds yfir X á grundvelli a., b. og c. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að H skyldi sæta gæsluvarðhaldi, en ekki þóttu hafa verið lögð fram viðhlítandi læknisfræðileg gögn um að efni væru til þess að beita ákvæði 110. gr. laga nr. 19/1991, þannig að H skyldi vistaður á sjúkrahúsi.

Hæstiréttur birt 10. mars 1999

96/1999

Sýslumaðurinn á Hvolsvelli gegn Steini Ármanni Stefánssyni (Hilmar Baldursson hdl)

S var grunaður um tvær líkamsárásir. Talið var að skilyrðum d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 væri fullnægt til að verða við kröfu um gæsluvarðhald. Var úrskurður héraðsdóms staðfestur.