Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

35 dómar fundust

Lykilorð: Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991

Hæstiréttur birt 25. ágúst 2015

557/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Atli Már Ingólfsson hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 7. ágúst 2008

429/2008

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gegn X (Jón Höskuldsson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 19. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum og b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 17. september 2004

383/2004

Ríkislögreglustjóri gegn X (Guðmundur Óli Björgvinsson hdl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Hæstiréttur birt 8. apríl 2003

126/2003

Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli (Sævar Lýðsson fulltrúi) gegn X, Kærumál. Gæsluvarðhald. A, B-liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli og a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála (Ásbjörn Jónsson hdl)

X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 11. mars 2003

85/2003

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)

X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Hinn kærði úrskurður er staðfestur. Með vísan til fyrirliggjandi gagna og greinargerðar þykir kærði vera undir sterkum grun um þátttöku í stórfelldu broti sem varðað getur hann allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173.gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 .

Hæstiréttur birt 31. janúar 2003

43/2003

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Örn Clausen hrl)

X var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist á A fyrir utan skemmtistað, slegið hann niður, sest klofvega yfir hann og slegið hann með bjórflösku, sem brotnaði við það, og slegið hann hnefahöggum svo A hlaut mar yfir vinstri augabrún, mar undir vinstra auga, bólgu á öllum hægri helmingi andlits og eymsli í kinnbeini og neðri kjálka og með því að beita brotinni flöskunni til að skera A þannig að hægra eyra var meira og minna tætt og eyrnavængur sundurskorinn, sbr. 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í 4 mánuði, en fullnustu hennar frestað og hún látin falla niður að liðnum 3 árum með hliðsjón af ungum aldri og sakaferli X. Þá var X gert að greiða A skaðabætur að fjárhæð 231.111 krónur.

Hæstiréttur birt 27. mars 2002

151/2002

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur birt 4. mars 2002

99/2002

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sigurmar Kristján Albertsson hrl)

Kærumál. B. liður 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi. Krafist var framlengingar gæsluvarðhaldsvistar X á grundvelli b. liðar 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála en X var grunuð um aðild að broti sem varðaði innflutning á umtalsverðu magni af hættulegum fíkniefnum. Ekki var fallist á að þörf væri á gæsluvarðhaldi yfir X vegna þeirra ástæðna sem um ræðir í b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, eða að hlutur hennar í brotinu væri slíkur, að gæsluvarðhaldsvist hennar yrði framlengd á grundvelli 2. mgr. 103. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 1. desember 2000

436/2000

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Pétur Örn Sverrisson hdl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Hæstiréttur birt 6. október 2000

371/2000

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Hjalti Pálmason fulltrúi) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Hæstiréttur birt 23. júlí 1999

289/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Kolbrún Sævarsdóttir fulltrúi) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur, en gæsluvarðhaldstími styttur.

Hæstiréttur birt 2. júlí 1999

261/1999

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Kio Alexander Ayomambele Briggs (Helgi Jóhannesson hrl)

Talið var að skilyrðum b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála væri fullnægt til þess að K sætti farbanni sbr. 110. gr. laganna. Hins vegar var kröfum ákæruvalds um tiltekna framkvæmd farbannsins hafnað.

Hæstiréttur birt 23. mars 1999

130/1999

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarson fulltrúi) gegn X (Hilmar Magnússon hdl)

X, erlendur ríkisborgari búsettur á Íslandi, var grunaður um stórfelld brot gegn 155. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa innleyst falsaða tékka og ráðstafað andvirði þeirra. Fallist var á þá niðurstöðu héraðsdóms að skilyrðum samkvæmt a. og b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 væri fullnægt til að verða við kröfu um að X sætti áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 15. mars 1999

113/1999

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn X (Halldór Jónsson hdl)

X, erlendur ríkisborgari búsettur á Íslandi, var grunaður um að hafa aðstoðað Y við að innleysa falsaða tékka fyrir háar fjárhæðir. Fallist var á að fullnægt væri skilyrðum a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til þess að X sætti gæsluvarðhaldi. Þá var fallist á kröfu rannsóknara um að gæsluvarðhaldstíminn yrði lengdur frá því sem ákveðið hafði verið í héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 11. mars 1999

95/1999

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn X (Hilmar Magnússon hdl)

X, erlendur ríkisborgari búsettur á Íslandi, var grunaður um stórfelld brot gegn 155. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa innleyst falsaða tékka og ráðstafað andvirði þeirra. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að skilyrðum samkvæmt a. og b. lið1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 væri fullnægt til að verða við kröfu um að X sætti áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Hæstiréttur birt 1. mars 1999

80/1999

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn X (Hilmar Magnússon hdl)

X, erlendur ríkisborgari búsettur á Íslandi, var grunaður um stórfelld brot gegn 155. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa innleyst falsaða tékka og ráðstafað andvirði þeirra. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að skilyrðum samkvæmt a. og b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 væri fullnægt til að verða við kröfu um gæsluvarðhald. Krafa rannsóknara um að gæsluvarðhaldi yrði markaður lengri tími en ákveðinn var í héraði kom ekki til álita þar sem hann hafði ekki kært úrskurðinn fyrir sitt leyti.