Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Dráttur á málsmeðferð
Ákærði var sakfelldur fyrir nauðgun með því að hafa án samþykkis og með ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök en samræði við brotaþola. Ákærði var dæmdur í fangelsi í tvö ár en hluti refsingarinnar var skilorðsbundinn vegna mikilla tafa á málsmeðferðinni. Þá var hann dæmdur til greiðslu miskabóta.
Héraðssaksóknari (
Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristjáni Georg Jósteinssyni (
Heiðar Ásberg Atlason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt og lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2015 til og með 2018 og láta undir höfuð leggjast að telja fram á skattframtölum sínum annars vegar persónulegar úttektir úr rekstri þriggja nánar tilgreindra félaga skráðra á Íslandi og á Spáni,og hins vegar með því að vanframtelja tilteknar greiðslur sem bárust á bankareikning ákærða. Með framangreindum hætti vanframtaldi ákærði tekjur sínar og komst með því hjá að greiða 38.792.544 krónur í tekjuskatt og útsvar. Brotin framdi ákærði fyrir uppkvaðningu dóms Landsréttar 2021 þar sem hann var m.a. sakfelldur fyrir innherjasvik og var refsing hans því hegningarauki við dóm Landsréttar. Var refsing ákærða ákveðin óskilorðsbundið fangelsi í 8 mánuði. Þá var honum gert að greiða 77.585.088 króna til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 360 daga. Við ákvörðun refsingar var litið til dráttar á meðferð málsins á rannsóknarstigi.