Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Dómsmálagjöld (ft.)
Mari Sikk (sjálf) gegn
Landsbankanum hf og Magnúsi Árna Hallgrímssyni (
Hannes J. Hafstein lögmaður)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu M um að frumvarpi sýslumannsins á Norðurlandi vestra til úthlutunar söluverðs nánar tiltekinnar fasteignar yrði breytt. Varakröfu M þess efnis að lagt yrði fyrir sýslumann að halda uppboðsmálinu áfram eða selja fyrrgreinda fasteign á ný var einnig hafnað. Eftir uppkvaðningu úrskurðarins var M, sem er ólöglærð, leiðbeint af héraðsdómara um að hún gæti kært úrskurðinn til Landsréttar. Þá var henni jafnframt leiðbeint um efni kæru og að hún þyrfti að greiða kærugjald. M kærði úrskurð héraðsdóms en bar því við að hún þyrfti ekki að greiða kærugjaldið. Í úrskurði Landsréttar var rakið að samkvæmt 1. tölulið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs, eins og þeim hefði verið breytt með 38. gr. laga nr. 129/2022, skyldi við meðferð einkamáls fyrir Landsrétti greiða í ríkissjóð gjald að fjárhæð 70.000 krónur við kæru úrskurðar héraðsdóms til Landsréttar. Þá bæri kæranda dómsathafnar samkvæmt 3. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 3. mgr. 79. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu, að greiða héraðsdómara lögmælt dómgjöld fyrir Landsrétti. Þar sem fyrir lægi að M hefði ekki greitt hið lögákveðna gjald vegna kæru sinnar og undanþáguákvæði 6. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 yrði ekki talið geta átt við vegna kæru M á grundvelli 1. mgr. 79. gr. laga nr. 90/1991 taldi Landsréttur ekki skilyrði til að taka málið til frekari meðferðar. Var málinu því vísað frá Landsrétti.
A kærði úrskurð héraðsdóms þar sem leyst var úr nánar tilgreindum ágreiningi milli aðila við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Þar sem A hafði ekki greitt gjald fyrir kæru samkvæmt 1. tölulið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs voru ekki talin skilyrði til að taka málið til frekari meðferðar fyrir Landsrétti. Var málinu því vísað frá Landsrétti.
Málinu var vísað frá Landsrétti þar sem kærugjald var ekki greitt samhliða afhendingu kæru, sbr. 3. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.