Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Dánarbú. Opinber skipti. Skiptastjórar. Skiptakostnaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2026

E-173/2025

Lögmenn Thorsplani sf (Jón Auðunn Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Lögmannsstofa skiptastjóra höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu til greiðslu skiptakostnaðar vegna dánarbús manns sem lést árið 1966. Bú mannsins hafði verið tekið til opinberra skipta árið 1967 á grundvelli 5. gr. laga nr. 3/1878. Við gildistöku laga um skipti á dánarbúum ofl. nr. 20/1991 var um lagaskil kveðið á um það í 148. gr. að skiptaráðendur í dánarbúum, þar sem fyrirséð væri þann 1. júní 1992 að skiptum yrði enn ólokið 1. júlí 1992, skyldu halda skiptafund fyrir gildistöku laganna þar sem framhald skipta yrði ráðið og erfingjum ýmist gefið leyfi til einkaskipta eða skipaður skiptastjóri í opinberum skiptum. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 375/2011 var fallist á með sóknaraðilum þess máls, sem voru fjórir erfingjar hins látna, að ekki hafi verið sýnt fram á að skiptum á dánarbúi mannsins sem hófust í skiptarétti árið 1967, hafi verið lokið með formlegum hætti svo sem skylt var að lögum. Leiddi það að mati Hæstaréttar til þess að taka bæri kröfu þeirra um skipum skiptastjóra til að ljúka skiptunum til greina. Var skiptastjórinn skipaður í framhaldi uppkvaðningar dóms Hæstaréttar. Ekki var fallist á með skiptastjóranum að greiðsluskylda ríkisins leiddi af 37. gr. laga nr. 20/1991 enda hafði sýslumaður ekki krafist opinberra skitpa á dánarbúinu né heldur voru fyrir hendi nein þeirra sex skilyrða sem talin eru upp í ákvæðinu. Var íslenska ríkið sýknað af kröfum stefnanda af greiðslu skiptakostnaðar dánarbús hins látna.