Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

52 dómar fundust

Lykilorð: Afhending sakaðs manns

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

126/2025

Ríkissaksóknari (Pétur Hrafn Hafstein aðstoðarsaksóknari) gegn X (Birkir Már Árnason lögmaður)

Úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun R um að fallast á beiðni um afhendingu X til Litáen á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar var staðfestur um annað en þóknun verjanda X.

Landsréttur birt 20. desember 2024

1011/2024

Ríkissaksóknari (Pétur Hrafn Hafstein aðstoðarsaksóknari) gegn X (Kristín Eva Geirsdóttir lögmaður)

Úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var nánar tilgreind ákvörðun R um að fallast á beiðni um afhendingu X til Lettlands var staðfestur um annað en þóknun skipaðs verjanda X.

Landsréttur birt 15. október 2024

805/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi til að koma í veg fyrir að X kæmi sér undan málsmeðferð samkvæmt lögum nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.

Landsréttur birt 21. febrúar 2024

131/2024

Ríkissaksóknari (Dröfn Kærnested settur saksóknari) gegn X (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var nánar tilgreind ákvörðun R um að verða við beiðni um afhendingu X á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Með vísan til 3. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, var málinu vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 1. desember 2023

827/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 21. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.

Landsréttur birt 24. nóvember 2023

790/2023

Ríkissaksóknari (Dröfn Kærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni um afhendingu X á grundvelli norrænnar handtökuskipunar, með nánar tilgreindum skilyrðum, var staðfest.

Landsréttur birt 14. nóvember 2023

727/2023

Ríkissaksóknari (Pétur Hrafn Hafstein aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)

X kærði úrskurð héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun ríkissaksóknara um að fallast á beiðni rúmenskra yfirvalda um að afhenda hann til Rúmeníu á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Í úrskurði Landsréttar var rakið að R hafi borið áður en hann tók ákvörðun um hvort fallast ætti á beiðnina um afhendingu X til Rúmeníu að taka rökstudda afstöðu til þess hvort skyldubundin synjunarástæða samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 51/2016 og þar með efnisleg skilyrði til afhendingar stæðu henni í vegi með tilliti til þess sem fram kom í framlagðri skýrslu CPT nefndar Evrópuráðsins þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir við aðbúnað í fangelsum í Rúmeníu. Af rökstuðningi fyrir ákvörðun R eða öðrum gögnum málsins var ekki ráðið að það hefði verið gert. Var því felld úr gildi ákvörðun R um að verða við beiðni um afhendingu X til Rúmeníu á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.

Landsréttur birt 30. október 2023

725/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 3. mgr., sbr. 1. mgr. 21. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, sbr. 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í úrskurði Landsréttar kom fram að X væri eftirlýst samkvæmt norrænni handtökuskipun en í henni kæmi fram að X hefði sótt þrjú börn sín erlendis frá og ferðast með þau til Íslands gegn vilja föður barnanna sem færi með forsjá þeirra. Fyrir lægi að börnin dveldu enn hér á landi í trássi við vilja föður þeirra. Þá hefði X ekki afhent börnin til föður þeirra þrátt fyrir úrskurð Landsréttar 31. janúar 2023 um heimild föðurins til að fá börnin afhent með beinni aðfarargerð. Auk þess hefði X tekið börnin úr skóla í lengri tíma og dvalið með þau á óþekktum stöðum fjarri lögheimili þeirra. Var talið nægilega fram komið að hætta væri á því að X færi úr landi eða leyndist ellegar kæmi sér með öðrum hætti undan málsókn í sakamáli sem höfðað hafði verið á hendur henni erlendis. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Landsréttur birt 14. apríl 2023

258/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu L um að X skyldi gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 3. mgr. 14. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var hafnað. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ráða megi af 3. mgr. 30. gr. laga nr. 51/2016 að gert sé ráð fyrir að þvingunarráðstöfun samkvæmt lögunum skuli halda gildi sínu þar til frestur til afhendingar samkvæmt 1. mgr. sömu lagagreinar er liðinn, þótt fyrir liggi endanleg ákvörðun um afhendingu eftirlýsts manns. Talið var að sérstakar aðstæður hafi gert það að verkum að afhending varnaraðila hefði ekki getað farið fram og væri frestur til afhendingar samkvæmt 1. mgr. 30. gr. því ekki liðinn. Var af þeim sökum fallist á kröfu L um að X yrði gert að sæta áfram farbanni.

Landsréttur birt 28. febrúar 2023

148/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sigurður H. Kristjánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigmundur Guðmundsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi til að koma í veg fyrir að X kæmi sér undan málsmeðferð samkvæmt lögum nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.

Landsréttur birt 23. febrúar 2023

135/2023

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Axel Kári Vignisson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu L um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi. Fyrir lá endanleg niðurstaða um afhendingu X til Póllands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að eins og atvikum væri háttað yrði fallist á með L að ætla mætti að X myndi reyna að komast úr landi eða forða sér með öðrum hætti undan fullnustu refsingar, sbr. b-lið 95. gr. laga nr. 88/2008. Að virtum atvikum að öðru leyti hefði L ekki sýnt fram á að nauðsynlegt væri að X sætti gæsluvarðhaldi vegna málsins, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar og fyrrgreint ákvæði laga nr. 88/2008. Telja yrði farbann, sem væri vægara úrræði, fullnægjandi til koma í veg fyrir að X komi sér undan málsmeðferð og afhendingu á honum til pólskra yfirvalda, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 51/2016, sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008. Var X því bönnuð brottför frá landinu í nánar tilgreindan tíma.

Landsréttur birt 30. nóvember 2022

744/2022

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi til að koma í veg fyrir að X kæmi sér undan málsmeðferð samkvæmt lögum nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.

Landsréttur birt 28. apríl 2020

209/2020

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Brynjólfur Eyvindsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem skilyrði til afhendingar X til portúgalskra yfirvalda, á grundvelli laga nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, voru talin uppfyllt. Í handtökuskipuninni kom fram að X hefði verið dæmdur til fangelsisrefsingar í sex ár og tíu mánuði fyrir að hafa á tímabilinu 26. mars 2014 til 11. ágúst sama ár staðið að sölu fíkniefna og fyrir að hafa haft í vörslum sínum þann dag 2.329 g af kókaíni.

Hleð fleiri dómum…