Landsréttur
Úrskurður þriðjudaginn 11. maí 2021.
Mál nr. 62/2021:
Ákæruvaldið
(Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari)
gegn
X
(Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Hafnað var kröfu X um að sérfróður meðdómsmaður viki sæti í máli Á gegn X.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Hervör Þorvaldsdóttir og Ragnheiður Harðardóttir og Jón Baldursson, sérfræðingur í bráðalækningum, kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar 25. janúar 2021 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. janúar 2021 í málinu nr. S-[…]/2020.
- Á þessu stigi er aðeins til úrlausnar krafa ákærða um að sérfróður meðdómsmaður, Jón Baldursson, sérfræðingur í bráðalækningum, víki sæti sökum vanhæfis. Málið var flutt munnlega fyrir Landsrétti 11. maí 2021.
- Ákæruvaldið krefst þess að kröfu ákærða verði hafnað.
Málsatvik og málsástæður aðila.
- Með tölvubréfi Landsréttar 11. mars 2021 voru aðilar upplýstir um að rétturinn hefði í hyggju að kveðja Jón Baldursson, sérfræðing í bráðalækningum, til setu í málinu sem sérfróðan meðdómsmann. Var aðilum veittur frestur til 16. sama mánaðar til að gera athugasemdir við þá skipan og bárust athugasemdir frá verjanda 12. þess mánaðar. Greinargerðir aðila til Landsréttar lágu fyrir 21. apríl síðastliðinn. Afstaða verjanda til nauðsynlegrar sönnunarfærslu fyrir Landsrétti lá fyrir 30. sama mánaðar. Með tölvubréfi þann dag var aðilum tilkynnt um skipan dómsins og tilhögun aðalmeðferðar, sem fyrirhuguð er dagana 20. og 21. maí. Með tölvubréfi 5. maí síðastliðinn barst réttinum krafa ákærða sem hér er til úrlausnar og fór fram munnlegur málflutningur um hana í þinghaldi fyrr í dag.
- Krafa ákærða um að hinn sérfróði meðdómandi víki sæti í málinu er reist á g-lið 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Vísað er til þess að Jón Baldursson og sérfróður meðdómandi í málinu í héraði, Hjalti Már Björnsson sérfræðilæknir, séu fyrrum samstarfsmenn á bráðadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Þá séu þeir og A réttarmeinafræðingur, sem annaðist krufningu í þágu rannsóknar málsins, allir starfsmenn spítalans. Auk þess hafi Jón Baldursson og Hjalti Már ritað saman fræðigrein. Með vísan til þessa telur ákærði atvik eða aðstæður vera fyrir hendi sem séu fallnar til þess að draga óhlutdrægni meðdómandans í efa. Loks telur ákærði að málið varði ekki atriði sem krefjist sérþekkingar í bráðalækningum heldur reyni þar á sérþekkingu í lyflækningum.
- Ákæruvaldið telur að þau tengsl sem ákærði vísar til séu ekki til þess fallin að draga óhlutdrægni meðdómandans í efa með réttu. Þá lúti málið að atriðum er varði sérþekkingu í bráðalækningum.
Niðurstaða
- Í máli þessu er ákærða, X, gefið að sök manndráp með því að hafa, laugardaginn 28. mars 2020, banað eiginkonu sinni, B, á heimili þeirra í […], með því að þrengja að hálsi hennar með þeim afleiðingum að hún lést af völdum köfnunar. Er háttsemin í ákæru talin varða við 211. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi héraðsdóms var ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru.
- Eins og rakið er í hinum áfrýjaða dómi leiddi réttarkrufning á líki brotaþola meðal annars í ljós að hún var með áverka á hálsi og punktblæðingu í slímhúð augna og munns. Var það niðurstaða réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar að dánarorsök hennar hafi verið þrýstingur um hálsinn með köfnun í kjölfarið. Einnig liggur fyrir matsgerð Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði þar sem fram kemur að etanól í blóði brotaþola hafi mælst 3,12‰ en auk þess mældist þar klórdíasepoxíð 440 ng/ml og umbrotsefni þess. Í matsgerð tveggja réttarmeinafræðinga sem dómkvaddir voru til að svara nánar tilgreindum spurningum kom fram að ef horft væri eingöngu til áfengismagns sem mældist í blóði brotaþola væri mögulegt að hún hefði látist af völdum blöndunareitrunar áfengis og klórdíasepoxíðs og umbrotsefnis þess. Í hinum áfrýjaða dómi er gerð ítarleg grein fyrir læknisfræðilegum gögnum og vitnisburði sérfræðinga hvað þessi atriði varðar.
- Deilt er um dánarorsök brotaþola hér fyrir dómi og hefur því verið ákveðið að fá til setu í dóminum sérfróðan lækni með sérkunnáttu í bráðalækningum til að leggja mat á þau læknisfræðilegu álitaefni sem uppi eru í málinu. Þau álitefni lúta bæði að mati á áhrifum áverka og eitrunaráhrifum áfengis- og lyfja sem hvort tveggja er á sérsviði bráðalækninga.
- Jón Baldursson, sérfræðingur í bráðalækningum, sem kvaddur hefur verið til setu í dóminum, er yfirlæknir öryggis- og gæðamála við gæða- og sýkingavarnadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Hann var áður sérfræðilæknir á bráðadeild spítalans og starfaði þá með Hjalta Má Björnssyni, sérfróðum meðdómanda í málinu í héraði. Þá liggur fyrir að réttarkrufning var unnin af A réttarmeinafræðingi á spítalanum. Framangreind starfstengsl læknanna þriggja, eða annað það sem ákærði nefnir í kröfugerð sinni, valda ekki vanhæfi Jóns Baldurssonar sérfróðs meðdómanda í málinu, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008. Verður kröfu ákærða því hafnað.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu ákærða, X, um að hinn sérfróði meðdómsmaður, Jón Baldursson, sérfræðingur í bráðalækningum, víki sæti í málinu.
Heimildaskrá
Lagaskrá
Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög
211. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála
1. mgr. 6. gr.